Kort Vefur

Fréttir

  • Nýjustu fréttir
  • Yfirlit

Umhverfisspjöll breyta Afríkukortinu

28.06.2008

Umhverfisráðherrar Afríkuríkja kynntu 10. júní nýja kortabók sem Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna hefur tekið saman fyrir þeirra hönd. Í bókinni Atlas of Our Changing Environment eru meir en 300 ljósmyndir sem teknar voru af hundrað stöðum í Afríku. Birtar eru myndir sem teknar vorur fyrir þrjátíu og fimm árum og sjást glögglega þær miklu breytingar sem orðið hafa á umhverfinu, sumpart af mannavöldum.

Eitt mest sláandi dæmið eru myndir af jöklum í Rwenzori fjöllum í Úganda sem minnkað hafa um helming á rúmum tveimur áratugum. Þá sést glögglega hvernig stöðuvötn á borð við Tsjad-vatn hafa minnkað og yfirborð Viktoríu-vatns lækkað. Þá eru sláandi dæmi um hversu eyðimerkur hafa breiðst út og hvernig gengið hefur verið á skóglendi.

Talið er að meir en 300 milljónir manna skorti drykkjavartn í Afríku. Loftslagsbreytingum er í sívaxandi mæli kennt um neikvæða þróun í Afríku og er óttast að mjög herði á þeirri þróun á næstunni. Einungis fjögur prósent af útblæstri koltvíserings í heiminum kemur frá Afríku, en íbúar álfunnar verða einna harðast allra jarðarbúa fyrir barðinu á afleiðingum.

Nálgast má ljósmyndirnar á eftirfarandi vefslóðum

http://na.unep.net/AfricaAtlas
 
www.unep.org/dewa/africa/AfricaAtlas

Til baka
21.08.09

Náttúrukortið á Menningarnótt

Á Menningarnótt mun Framtíðarlandið standa fyrir sýningu á ljósmyndum...Meira

17.09.08

Umhverfisráðherra opnar Náttúrukortið.

Umhverfisráðherra mun í dag, 17. september, opna Náttúrukortið í...Meira

8.07.08

The Machine Is Deaf

June 17, 1944, the greatest minds in Iceland convened on the banks of "Lake...Meira

30.06.08

Nattura Ringtones

Fantastic atmosphere gripped Reykjavik for the Náttúra Concert this past...Meira

29.06.08

Náttúra Concert A Success

Náttúra, the largest live music event ever held in Iceland, took place...Meira

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn