Kort Vefur

Fréttir

  • Nýjustu fréttir
  • Yfirlit

Heita vatnið lausn fyrir Evrópusambandið?

28.06.2008

Evrópusambandið hefur ákveðið að ganga á undan með góðu fordæmi og draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda um 20 prósent fyrir 2020. Þar að auki stefnir ESB að því að á sama tíma verði hlutfall endurnýjanlegrar orku komin í 20% af heildarorkunotkun.

Evrópusambandið hefur ákveðið að ganga á undan með góðu fordæmi og draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda um 20 prósent fyrir 2020. Þar að auki stefnir ESB að því að á sama tíma verði hlutfall endurnýjanlegrar orku komin í 20% af heildarorkunotkun.

En hvernig á að ná þessu marki? Óhætt er að segja að upplýsingar sem íslenskir jarðhitajöfrar komu með á málþingi Iðnaðarráðuneytisins íslenska og framkvæmdastjórnar ESB í Brussel fyrir skemmstu hafi vakið mikla athygli. Þar kom fram að möguleikar til raforkuframleiðslu með jarðvarma eru mjjög miklir í Evrópusambandsríkjunum.

Lárus Elíasson, forstjóri ENEX sagði á málþinginu að hægt væri að fullnægja 1.2 prósent af allri orkuþörf Evrópusambandsríkjanna 27 með jarðvarma. Hann sagði að hægt væri að beisla jarðhita til að framleiða meir en 5% af orkuþörf ríkja á borð við Póllands, Slóvakíu, Ungverjalands, Króatíu, Búlgaríu og Rúmeníu. Svipaða sögu er að segja um flest ríki á Balkansskaga og einnig eru miklir möguleikar á Ítalíu.  Meira að segja í Þýskalandi væri hægt að svala 1-2% af orkuþörfinni með raforku frá jarðhita. 

Íslendingar hafa þegar haslað sér völl í jarðhita í mörgum ríkjum Austur-Evrópu en það er ekki síður hækkandi oliuverð en loftslagsbreytingar sem knýja áhugann. Einn starfsmanna Geysi Gren energy sagði að það væri talandi dæmi að þegar fyrirtækið hóf að kanna möguleika í Slóvakíu komust þeir að raun um að landið var eins og svissneskur ostur – svo mikið hafði  verið borað. Menn voru hins vegar að leita að olíu og gasi og brugðust hinir verstu við þegar þeir æfinlega niður á heitt vatn !!!


Ólafur G. Flóvenz benti á að 0.1% af orkunni í iðrum jarðar myndi fullnægja allri orkunotkun heimsins í tíu þúsund ár! Möguleikarnir eru því miklir en Ólafur viðurkenndi að það væri langt í að við gætum beislað alla þessa orku.


Til baka
21.08.09

Náttúrukortið á Menningarnótt

Á Menningarnótt mun Framtíðarlandið standa fyrir sýningu á ljósmyndum...Meira

17.09.08

Umhverfisráðherra opnar Náttúrukortið.

Umhverfisráðherra mun í dag, 17. september, opna Náttúrukortið í...Meira

8.07.08

The Machine Is Deaf

June 17, 1944, the greatest minds in Iceland convened on the banks of "Lake...Meira

30.06.08

Nattura Ringtones

Fantastic atmosphere gripped Reykjavik for the Náttúra Concert this past...Meira

29.06.08

Náttúra Concert A Success

Náttúra, the largest live music event ever held in Iceland, took place...Meira

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn