
Blanda var stífluð við Reftjarnarbungu, um miðja vegu milli upptaka og árósa. Jafnframt var reist stífla við upptök Kolkukvíslar nokkru vestar, en hún fellur til Vatnsdalsár. Frá Kolkustíflu er vatni veitt um veituskurði, samtals um 25 km leið að inntakslóni virkjunarinnar og liggur veituleiðin um nokkur vötn á heiðinni. Frá inntakslóni er vatni veitt um 1.300 m langan skurð að inntaki virkjunarinnar þar sem það fellur eftir hallandi stálpípu að lóðréttum stálfóðruðum göngum niður að stöðvarhúsi sem staðsett er neðanjarðar, rúmlega 200 m undir yfirborðinu. Við stöðvarhúsið greinist fallpípan í þrjár láréttar pípur að vatnshverflum sem hver um sig er 50 MW að afli. Frá hverflum fellur vatnið um 1.700 m löng frárennslisgöng út í farveg árinnar, en hann var dýpkaður með skurði um 1.200 m vegalengd niður fyrir enda frárennslisganga. Blöndulón er 57 km2 að stærð og miðlunarrými þess 400 Gl.
AFl 150 MW.