Kort Vefur




Hrauneyjafossstöð er næst stærsta raforkuver Íslands og stendur á fallegum stað í jaðri hálendisins, á Sprengisandsleið.
Afl stöðvarinnar er 210 MW. Tungnaá er stífluð um 1,5 km ofan við Hrauneyjafoss og um 5 km neðan við Sigöldustöð. Við stífluna myndast 8,8 km² dægurmiðlunarlón. Um eins kílómetra langur aðrennslisskurður liggur frá lóninu í norður um lægð í Fossöldu að inntaki við norðurbrún öldunnar. Þaðan pípur að stöðvarhúsi. Frárennslisskurður er rúmlega eins kílómetra langur og liggur út í Sporðöldukvísl sem síðan rennur í Tungnaá. 


Heimild: Vefur Landsvirkjunar

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn