Kort Vefur




Írafossstöð virkjar fall tveggja neðri fossanna í Soginu, Írafoss og Kistufoss, og er fallhæðin 38 m.

Sogið er stíflað ofan við Írafoss nánast í sömu hæð og frárennsli Ljósafossstöðvar. Inntaksmannvirki eru á austurbakka árinnar og fer vatnið þaðan um brött fallgöng að stöðvarhúsi neðanjarðar en frá því liggja hallalítil frárennslisgöng undir árfarveginn sem liggur í sveig neðan við stífluna og opnast þau á vesturbakka árinnar neðan við Kistufoss.
Afl er 48 MW.

Heimild: af vef Landsvirkjunar

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn