
Lagarfljót á upptök sín í Eyjabakkajökli í Vatnajökli þar sem áin heitir Jökulsá í Fljótsdal. Frá upptökum sínum og til ósa Lagarfljóts við Héraðsflóa eru um 140 km. Í Lagarfljóti er Lögurinn sem er um 35 km langt stöðuvatn. Auk jökulárinnar, þá falla einnig margar dragár í fljótið, s.s. Grímsá, Kelduá og Eyvindará að austanverðu og Bessastaðaá og Rangá að norðanverðu. Dýpi Lagarins er um 112 metrar og vatnsmagnið er rúmlega 2700 gígalítrar. Í Leginum er talinn búa langar og stór ormur, svokallaður Lagarfljótsormur.
Vatnasvið Lagarfljóts fyrir ofan Lagarfoss er um 2.800 km2 og meðalrennslið að jafnaði um 115m3/sek. Í Lagarfljóti er Lagarfossvirkjun og dregur nafn af samnefndum fossi sem áður var þarna. Afl er 7,5 MW.
Heimildir:
Vefur Rarik (http://www.rarik.is/)
Vefur Nordic Adventure Travel (www.nat.is)
Vefur Wikipedia (http://is.wikipedia.org)