
Mjólká á upptök sín á vestanverðu Glámuhálendinu fyrir botni Borgarfjarðar. Fjörðurinn er einn fimm fjarða í Arnarfirði sem eru söguslóðir Gísla Súrssonar. Sunnan við Borgarfjörð liggur Dynjandisvogur þar sem komið er niður af Dynjandisheiði og Fjallfoss rennur til sjávar.
Rafmagnsveitur ríkisins stóðu að byggingu Mjólkárvirkjunar frá árunum 1956 til 1958 og Orkubú Vestfjarða, stofnað 1978, tók svo við rekstrinum. Núverandi Mjólkárvirkjun er í raun tvær virkjanir sem nýta sama stöðvarhús og aðstöðu í botni Borgarfjarðar. Eldri virkjunin, sem nefnist Mjólká I, er minni eða 2,4 MW en Mjólká II er 5,7 MW. Samanlagt afl stöðvanna er því 8,1MW.