
Virkjunin stendur inni á hálendinu nokkuð sunnan Þórislóns. Í stöðinni eru þrjár 50 MW vélasamstæður. Tungnaá er stífluð efst í gljúfrunum ofan við Sigöldu og myndast við það 14 km² miðlunarlón, Krókslón. Sigöldustífla er 925 m löng og 40 m há í gljúfrinu þar sem hún er hæst. Úr Krókslóni er vatninu veitt eftir 1 km löngum aðrennslisskurði gegnum ölduna að inntaki á vesturbrún Sigöldu. Frá því liggja þrýstivatnspípur að stöðvarhúsinu og frá stöðvarhúsinu er 550 m langur frárennslisskurður út í Hrauneyjafosslón.
Heimild: Vefur Landvirkjunar