
Í stöðinni er virkjað fall Efra-Sogsins úr Þingvallavatni í Úlfljótsvatn. Efra-Sog fellur um gljúfur sem gengur úr Þingvallavatni í hálfhring austur fyrir hæðarhrygg sem skilur Þingvallavatn frá Úlfljótsvatni og nefnist Dráttarhlíð. Miðlunarstífla var gerð við útrennsli Þingvallavatns. Aðrennslisgöng liggja þar úr vatninu í gegnum Dráttarhlíð yfir í opna jöfnunarþró ofan við stöðvarhúsið. Frá þrónni liggja fallpípur að hverflunum sem eru tveir. Vélarnar eru 13,5 MW hvor og fallhæðin 20,5 m.
Heimild: af vef Landsvirkjunar