Kort Vefur



Dyngjufjöll urðu til við gos undir jökli á ísöld. Mikil kvikuþró er undir fjöllunum og við stórgos hefur svo mikil kvika farið úr kvikuþrónni að þak hennar hefur sigið og mikill sigketill myndast. Meginhluti Öskjunnar myndaðist í lok ísaldar. Við gos á nútíma hafa hraun runnið inní Öskjunni en botn hennar er víðast í um 1100 m hæð. Á páskum árið 1875 var mikið gos í Öskju. Eftir það gos seig stór landspilda innan öskjunnar og mikil dæld myndaðist þar sem nú er Öskjuvatn. Síðast gaus í Öskju árið 1961.

Askja í Dyngjufjöllum er ein sérstæðasta jarðmyndunin í Ódáðahrauni og var hún friðlýst árið 1978.

Heimildir: Vefur Umhverfisstofnunar
http://www.ust.is/Natturuvernd/Fridlystsvaedi/Natturvaetti/nr/1576
Þorleifur Einarsson, Myndun og mótun lands, Reykjavík 1991

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn