
Djúpá í Fljótshverfi á upptök sín úr Síðujökli í Vatnajökli. Sett hafa verið fram hugmyndir um að stífla Djúpá í um 560 m hæð og veita vatni með skurði inn í Álftárdal sem er grösugur dalur austan Djúpár. Úr Álftárdal rennur Lambá sem yrði stífluð við minni dalsins með um 1,800 km löngum stíflum, sem yrðu mest rösklega
40 m háar. Við það yrði myndað miðlunar og inntakslón. Einnig yrði miðlunarlón búið til með því að stífla Hvítá í Vestri-Hvítárdal í um 770 m hæð. Úr henni yrði vatni veitt með göngum yfir á vatnasvið Lambár.Úr Álftárdalslóni yrði vatn tekið í göngum að stöðvarhúsi neðanjarðar undir Rauðabergsheiði. Frárennsli frá virkjun yrði veitt út í Djúpá í gljúfri um 1,3 km ofan við brú.
Djúpá rennur um óspillt svæði nærri stærsta þjóðgarði Íslands. Afar fallega fossaröð er að finna í Djúpá þar sem hún rennur í gegnum Djúpárdal.
Heimild: Úr viðauka A-1 í fyrsta áfanga rammaáætlunar