
Geysir í Haukadal er að líkindum frægasti goshver í heimi. Heiti hans í ýmsum myndum er notað sem fræðiheiti yfir goshveri á fjölmörgum tungumálum (en. geyser, sp. géiser). Goshverir voru lengi vel lítt þekktir utan Íslands og þóttu merkilegt fyrirbæri. Geysissvæðisins er getið í flestum ferðabókum fyrri alda um Ísland.
Geysis er fyrst getið í heimildum frá ofanverðri 13. öld. Svo virðist sem virki Geysissvæðisins sé mjög háð jarðskjálftavirkni á Suðurlandi. Eftir Suðurlandsskjálfta hefur virkni svæðisins aukist. Virknin var tiltölulega lítil frá aldamótum 1900 en eftir jarðskjálftana árið 2000 jókst virknin aftur.
Heimildir:
Vefur Hveravefsíðunnar (http://hot-springs.org/geysir1.htm)
Björn Hróarsson & Sigurður Sveinn Jónsson; Hverir á Íslandi, Mál og Menning, Reykjavík 1991