Kort Vefur




Gláma er hálendissvæðið milli Breiðafjarðar að sunnan Arnarfjarðar og Dýrafjarðar að vestan og Ísafjarðardjúps að norðaustan. Svæðið er um 230 km2 að flatarmáli og hæsti hluti þess, Snjófríð nær 930m hæð yfir sjó. Lengi var Gláma talin til jökla. Frá því um miðja 19. öld hefur hún ekki verið talin það þó stærri og smærri fannir liggi sumarlangt á svæðinu.

Til forna lágu þjóðleiðir yfir Glámu þó að svæðið sé víða stórgrýtt og erfitt yfirferðar enda liggur stystur vegur milli Arnarfjarðar annars vegar og austanverðrar Barðastrandasýslu og innanverðs Ísafjarðardúps hins vegar um Glámu. 

Margar ár eiga upptök sín á svæðinu – m.a. Mjólká sem rennur til Arnarfjarðar og Vatnsfjarðará í Vatnsfirði. 

Glámuvirkjun
Glámuhálendið er annar tveggja turna, á eftir Ófeigsfjarðarheiði, til virkjunar vatnsafls á Vestfjörðum. Orkubú Vestfjarða og Orkustofnun hafa sett fram hugmyndir um nokkra virkjunarkosti frá Glámu og er Hestfjarðavirkjun ein þeirra. Með miðlun vatns af hálendinu og flutningi þess, í gegnum 30km heilboruð göng, er áætlað afl virkjunar 67MW.

Heimild: Vestfjarðarit I, Firðir og fólk, 900-1900, Kjartan Ólafsson, útg. Búnaðarsamband Vestfjarða 1999
http://is.wikipedia.org/wiki/Gl%C3%A1ma

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn