Kort Vefur

Hellisheiði - Grændalur




Grændalur er næstum beint upp af Hveragerði en dalmynnið er þröngt og lítið áberandi. Hann hefur einnig verið nefndu Grendalur en Grændalsnafnið á vel við þar sem dalurinn er gróinn og gróðurinn sérlega grænn. Ummerki jarðhiti eru mjög víða, m.a. eftir báðum hlíðum endilöngum og í dalbotninum. Berggrunnurinn er þéttur þannig að vatn sígur lítið niður í hann en gömul framhlaup eru í hlíðunum og þar spretta upp lindir. Jarðhitinn í Grændal  er óvenjulega fjölbreyttur.. Gufuhverir eru áberandi en þar finnast líka leirhverir, litlir sprengigígar, heitar skellur, vatnshverir, og heitar og volgar lindir og lækir sem sitra niður hallann. Grændalur er eitt af stærstu ósnortnu hvera- og laugasvæðum landsins í nánd við byggð. Gróskan er mikil og í dalnum vaxa nokkrar sjaldgæfar plöntutegundir, sem hér á landi finnast aðeins við jarðhita. Lífríki hveranna er talið einstaklega fjölbreytt. Náttúrufræðistofnun Íslands og Umhverfisstofnun hafa lagt til að Grændalur verði friðlýstur. Auðvelt er að komast að Grændal með því að aka í gegnum Hveragerði og áfram til norðurs þar til vegurinn endar. 

Orkufyrirtæki hafa sóst eftir að virkja í Grændal. Árið 2001 lagðist Skipulagsstofnun gegn áformum Sunnlenskrar orku um rannsóknaborun í botni Grændals og vegagerð um 3 km leið inn eftir dalnum. Skipulagsstofnun féllst á borun rannsóknarholu í mynni dalsins með einu skilyrði. Fyrirtækið kærði úrskurðinn til umhverfisráðherra sem felldi hann úr gildi. Ráðherra samþykkti borstað norðan dalsins og veg að honum úr norðri frá línuvegi Búrfellslínu en féllst ekki á meginkröfu Sunnlenskrar orku um borstað og veg inn í dalnum sjálfum.


Þóra Ellen Þórhallsdóttir

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn