
Ölkelduhálssvæðið sker sig úr fyrir kolsýrulaugarnar sem eru í þyrpingu frá Ölkelduhálsi suður í Reykjadal og í Hverakjálka. Jarðhitinn þar fylgir gosrein með misgömlum móbergsfjöllum og stökum hraungígi, Tjarnarhnúki.
Aðgengi er auðvelt eftir línuvegi og stikaðar gönguleiðir liggja um svæðið sem er afar fjölbreytt og áhugavert útivistarsvæði.
Heimild: Úr umfjöllun um jarðhitakosti í Rammaáætlun - Kristján Sæmundsson.