Kort Vefur




Í framhaldi af Herðubreiðarfjöllum til suðurs, í um 15 km fjarlægð frá Herðubreið eru Hrúthálsar. Einkennandi fyrir svæðið sem er í 1000-1100 m hæð yfir sjó eru unglegar minjar um eldvirkni. Berg á svæðinu er mikið ummyndað og gifsbreiður sjást á yfirborði. Ummyndunin sem sést á yfirborði gefur til kynna að svæðið sé um 7 km2 að stærð. Greinilegar eldstöðvar sjást í sveig sem er á milli Herðubreiðafjallana og hálsanna og apalhraun virðist hafa runnið norður með austurhlíð fjallana yfir eldra helluhraun. Norðantil í apalhrauninu er töluverður gróður sem liggur í lægðum.

Heimild:
Ásgrímur Guðmundssson. 2004. Jarðhiti í norðaustur gosbelti. Greinargerð ÁsG-04001. Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR). 6 bls.
Guðmundur Gunnarsson. 1981. Ódáðahraun. Árbók 1981. Ferðafélag Íslands. 208 bls.

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn