Kort Vefur




Hveravellir eru staðsettir á Kili milli Hofsjökuls of Langjökuls. Á Hveravöllum höfðust hinir þekktu útlagar Eyvindur Jónsson (Fjalla-Eyvindur) og Halla Jónsdóttir kona hans við. Á svæðinu er háhitasvæði þar sem finna má gufu- og vatnshveri. Má þar nefna Öskurhól Bláhver og Eyvindarhver (kenndan við Fjalla-Eyvind).

Hveravellir eru friðlýstir og margir ferðamenn bæði innlendir og erlendir sækja þá heim allt árið um kring. 
Heimildir af vef Hveravalla (
www.hveravellir.is)

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn