Kort Vefur




Hverfisfljót á upptök sín í Síðujökli í Vatnajökli. Hverfisfljót rennur í jaðri Eldhrauns sem rann í Skaftáreldum 1783 og er stærsta hraun sem komið hefur upp í einu gosi og það er því eitt af fáum heimsundrum á Íslandi. Mismunandi hugmyndir hafa verið settar fram um virkjun í Hverfisfljóti en núverandi hugmyndir virðast gera ráð fyrir 2,5 MW rennslisvirkjun við Hnútu og að gert verði inntakslón með stíflu í ánni ofan við Lambhagafossa. Landeigendur hafa þó sett fram hugmyndir um mun stærri virkjun, eða 15 MW.

Umhverfisráðherra hefur úrskurðað að meta skuli umhverfisáhrif virkjunar í Hverfisfljóti þar sem hætta er á umtalsverðu raski sökum vegagerðar og framkvæmda við stöðvarhús, frárennslisskurði, inntakslón og fleira.

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn