Kort Vefur




Hvestudalur við sunnanverðan Arnarfjörð er einn af mörgum Ketildölum sem mynda röð stuttra dala frá Kópnesi inn að bíldudalsvogi. Hvítur skeljasandurinn sem dreifist fyrir minni dalsins er  einkennandi fyrir vestfirði og er hann kallaður vaðall. Vestan við dalinn gnæfir Hringdalsgnúpur, 625m yfir sjávarmáli,  hæðst allra fjalla sunnan við Arnarfjörð. Austan megin stendur Hvestunúpur, en þaðan liggur vegurinn frá Bíldudal. Sé hinsvegar ekið vestur um Ketildali endar vegurinn í Selárdal en þar hefur  mikil uppbygging hefur átt sér stað. Unnið hefur verið að því að endurbyggja listaverk Samúels Jónssonar, ásamt heimili Gísla frá Uppsölum. 

Fyrirtækið Íslenskur hátækniiðnaður hefur til skoðunar byggingu Olíuhreinsunarstöðvar á Vestfjörðum. Eftir rannsóknir á staðarvali, þar sem sjólag og náttúrufar var meðal annars skoðað, varð Hvesta í Arnarfirði fyrir valinu.  Bygging stöðvarinnar myndi líklegast vera stærsta fjárfesting íslandssögunar, en kostnaðurinn við bygginguna er metinn á 3,5M€. Áætluð framleiðslugeta stöðvarinnar yrði 8M tonn á ári.

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn