
Gjástykki heitir sundursprunginn sigdalur norður frá Kröflu-kötlunni. Þar gaus í Kröflueldum. Hituhólar og Hrútfjallahitur heita þar norður í Gjástykki. Þar mun hafa verið hiti forðum, en var allt orðið dræmt, þangað til í Kröflueldum. Þá tóku gufur að rjúka upp úr gjám og hraunum á löngum kafla. Kenndu sumir um kvikuhlaupum frá Kröflu. Þetta svæði er í rannsókn og því lítið hægt að segja um það enn. Svæðið er utan alfaraleiða, langt frá öllum venjulegum vegum og fásótt af gangandi fólki.
Freysteinn Sigurðsson