Kort Vefur

Jökulsár Skagafj. - Villinganes




Margvíslegar hugmyndir hafa verið uppi um virkjun Jökulsánna. Nú virðast helst tvennar vera efstar á baugi, en önnur hefur verið nefnd Skatastaðavirkjun en hin Villinganesvirkjun. Með Villinganesvirkjun yrði stíflað um gljúfur Héraðsvatna hjá Villinganesi. Uppistöðulónið væri einkum í gljúfrum Héraðsvatna og Jökulsánna og næði inn á Vesturdal og talsvert langt inn á Austurdal. Gljúfrin færu því að mestu undir vatn. Virkjað yrði fallið hjá stíflustæðinu. Þessi virkjun gæti gefið örfáa tugi MW en er fremur dýr og óhagkvæm. Án miðlunar Skatastaðavirkjunar er hún enn óhagkvæmari. Rask yrði verulegt að henni, m.a. tæki af gljúfrareið (raftareið) í gljúfrunum.


Freysteinn Sigurðsson

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn