Kort Vefur




Kverkfjöll er hátt fjalllendi í kverk milli Brúarjökuls og Dyngjujökuls. Fjöllin ná uppí 1920 m hæð og eru því þriðji hæst fjallabálkur á landinu á eftir Öræfajökli og Bárðarbungu. Mikil megineldstöð er í Kverkfjöllum og öflugt háhitasvæði í tengslum við hana. Hverasvæðið er um 3 km á lengd og 1 km á breidd og liggur í 1600 – 1700 m hæð.

Óvíða  í heiminum má sjá jafn glöggt hvernig andstæður íss og elds mætast.

Heimildir: af vef Umhverfisstofnunar (http://www.ust.is/Frodleikur/Fridlystsvaedi//nr/1256)
Björn Hróarsson & Sigurður Sveinn Jónsson; Hverir á Íslandi, Mál og Menning, Reykjavík 1991

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn