Kort Vefur

Reykjanes - Brennisteinsfjöll




Jarðhitasvæðið er lítið um sig, í hraunjaðri austan undir hraunum þöktum móbergshálsi, austan undir Lönguhlíð og suðvestur frá Grindaskörðum. Þarna eru nokkur gufuaugu, en brennisteinn hafði safnast saman í hraungjótum, þar sem regn náði ekki að skola honum burtu. Gaf það staðnum nafn og fjöllunum (hálsinum) vestan hans. Fornar leirskellur eru utan í hálsinum og eins norðaustur frá jarðhitasvæðinu, sem bendir til nokkurs jarðhita í eina tíð. Afl svæðisins er nú haldið vera frekar lítið og ef til vill ekki eftir miklu að slægjast með jarðhitann þar heldur.


Uppi á hálsinum er einhver fegursta og stórfenglegasta gígaröð á landinu, og reyndar fleiri en ein. Vestan hennar, nærri norðurbrún Lönguhlíðar, er hæðin Kistufell með stórum og tilkomumiklum dyngjugíg, með storknaðri hrauntjörn. Hraun þekja þarna stór svæði og eru yfirleitt mosagróin, enda úrkoma mikil á fjöllunum og þokur eða skýjahulur tíðar. Þarna er því fjölbreytilegt og sérstætt eldfjallalandslag, óraskað, úfið og “villt”. Ganga þarf upp Grindaskörð frá Bláfjallavegi (syðri) og suður á fjöllin og niður að jarðhitasvæðinu, eða upp í eldgígalandið. Háspennulínur, jarðýtuvegir, borholur og virkjunarmannvirki myndu þarna valda verulegu raski á landslagi.


Freysteinn Sigurðsson

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn