Kort Vefur

Reykjanes - Sandfell




Einu jarðhitaummerkin voru góðviðrisgufur upp úr hrauninu norðan við Sandfellið. Rannsóknir hafa leitt í ljós, að þarna muni vera meira á ferðinni. Því hefur Hitaveita Suðurnesja aflað sér rannsóknarleyfis fyrir svæðið. Svæði þetta er utan alfaraleiða og einkennist landslag af dökkum og lítt grónum móbergsfellum, sem rísa yfir frekar slétt og mosagróin hraun.


Freysteinn Sigurðsson

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn