Kort Vefur

Reykjanes - Svartsengi




Jarðhitaummerki í Svartsengi voru góðviðrisgufur upp úr hrauninu (Illahraun, sögulegt), en þar að auki leirskellur norðan í Svartsengisfelli, við hið eiginlega Svartsengi, vestan í því og norðan í Þorbirni (Þorbjarnarfelli). Þarna var borað með góðum árangri í hrauninu og hefur nú verið rekið þar á vegum Hitaveitu Suðurnesja varmaorkuver í þrjá áratugi, sem er í stöðugri uppbyggingu. Sér það nú um 20.000 manns fyrir heitu vatni, auk þess sem afl þess til raforkuframleiðslu er nærri því 50 MW. Áætlanir eru um stækkun upp í 80 MW. Við orkuverið myndaðist “Bláa lónið” vegna þéttingar í hrauni og mosa af völdum kísilútfellinga. Er þar nú rekinn heilsubaðstaður, sem felldur hefur verið með ágætum inn í landslagið, auk heilsuhótels.


Freysteinn Sigurðsson

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn