Kort Vefur

Reykjanes - Trölladyngja




Trölladyngja er úfið móbergsfjall á norðurenda Vesturháls. Sunnan undir henni er skarðið Sog þvert í gegnum hálsinn. Í því eru leirskellur og lækur rennandi en vestast í því eru tættur Sogasels í fallegum og grónum hraungíg. Þarna hefur nú verið sett niður rannsóknarborhola með tilheyrandi vegaraski. Hitaveita Suðurnesja hefur rannsóknarleyfi á svæðinu og hefur þegar látið bora tvær rannsóknarholur, en ósýnt er enn um afl þess og orku, svo og hvar borið yrði niður, ef til vinnslu kæmi. Mikil sjónmengun væri að háspennulínum á þessum slóðum.


Freysteinn Sigurðsson

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn