
Allnokkru neðan við framkvæmdasvæði Hvammsvirkjunar, því sem næst í miðri sveit er önnur eyja í Þjórsá, Árnes sem Árnessýsla dregur nafn sitt af. Í öndverðu mun Þjórsá öll hafa runnið austan við hana og þá var hún landfast nes. Nú klofnar áin rétt neðan við fossinn Búða. Á þessum slóðum eru uppi áform um að reisa Holtavirkjun. Rétt ofan við Búða yrði byggð stífla sem veitti allri ánni í kvíslina sunnan við Árnes. Þar kæmi lón með steinsteyptri 73 m langri stíflu rétt við bæinn Akbraut. Frá lóninu yrði vatnið leitt í gegnum stöðvarhús en neðan þess um breiðan skurð þar til það mætir aftur sínum gamla farvegi. Farvegur Þjórsár Árnessýslumegin yrði vatnslítill eða þurr á 8-9 km kafla. Lónið mun hafa áhrif á tún og beitilönd fjögurra jarða og stöðvarhúsið yrði reist á hlaði jarðarinnar Akbrautar. Áætlað afl virkjunarinnar er um 50 MW.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir