Kort Vefur

Vonarskarð og Hágöngur

Hágöngur



Hágöngur eru um 40 km norðaustur af Þórisvatni. Lítt þekkt háhitasvæði er á þessu svæði og er það að hluta til undir Hágöngulóni. Á svæðinu virðist vera megineldstöð og er ekki ólíklegt að í henni sé askja þótt hún sjáist ekki.
Yfirborðsjarðhiti er fyrst og fremst á þremur stöðum og tveir þeirra lentu undir vatni er Hágöngulón var fyllt. Þriðji staðurinn er vestast í Sveðjuhrauni.



Vonarskarð




Svæðið milli Tungnafellsjökuls og Vatnajökuls (Bárðabungu) heitir Vonarskarð og eru þar þrjár megineldstöðvar. Vestast er Tungnafellsjökull sem virðist nokkuð gömul eldstöð og allmikið rofin. Í toppi hennar er lítil askja en yfirborðsjarðhiti hefur ekki fundist. Í miðið er Vonarskarð, sem grípur inn í austurhlíðar Tungnafellsjökuls. Austast er Bárðarbunga og er hún augljóslega yngst þessara þriggja megineldstöðva. Þar hefur ekki orðið vart jarðhita.

Settar hafa verið fram hugmyndir um jarðhitavirkjanir í Vonarskarði og í Sveðjuhrauni. Nú þegar hefur verið boruð hola í Sveðjuhrauni og vegir lagðir. Einnig hafa verið settar fram hugmyndir um vatnsaflsvirkjun við affall Hágöngulóns. Ef að virkjun verður byggð á þessu svæði þarf að leggja rafmagnslínur yfir Sprengisand til bygða.  

Jeppaslóð liggur um Hágöngur og Vonarskarð. Ferðamenn lýsa svæðinu sem lítt snortnu og afskektu svæði sem einstakt er að heimsækja. Gönguleiðir liggja frá Nýjadal, inn Jökuldal og yfir í Vonarskarð . Þarna er að finna magnað göngusvæði sem fáir þekkja.

Heimild: af vef Umhverfisstofnunar

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn