Náttúrukortið er kort af Íslandi sem gefur yfirsýn yfir þau svæði sem sem hafa verið nýtt eða fyrirhugað er að nýta til orkuframleiðslu eða raska á annan hátt. Á kortinu kemur fram hvar í “virkjunarferlinu” fyrirhuguð virkjunarsvæði eru, það er að segja hvort framkvæmdir séu hafnar, hvort svæðið sé “í sigtinu” fyrir raforkuframleiðslu eða hvort svæðið sé óraskað.
Auk ljósmynda af hverju svæði um sig eru veittar ítarlegar náttúrufarsupplýsingar. Sum þessara svæða eru þegar horfin, önnur langt gengin og enn önnur eru í hættu vegna áforma um raforkuframleiðslu eða stóriðju.
Náttúrukortið, með greinargóðum lýsingum á náttúrufari hvers staðar og mögnuðum ljósmyndum, er orðið að veruleika vegna framlags fræðimanna, ljósmyndara og listamanna.
Þau svæði sem merkt eru á kortinu eru svæði sem eru undir í rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma auk núverandi virkjana aflmeiri en 7,5 MW.
Tilgangur kortsins er að vera fræðandi og upplýsandi miðill um virkjunaráform á Íslandi.
Að Náttúrukortinu stendur Framtíðarlandið, félag áhugafólks um framtíð Íslands. Kortið verður í stöðugri endurskoðun og verður uppfært reglulega. Það verður tryggt að viðeigandi upplýsingar verði ávallt aðgengilegar. Framtíðarlandið mun sjá til þess að kortið verði virkur miðill og upplýsingaveita.
Í ritstjórn Náttúrukortsins sitja:
Bjarni Helgason, hönnuður. bjadddni hjá nothing.is
Christopher Lund, ljósmyndari. chris(at)chris.is
Hlynur Stefánsson, lektor. hlynur (at)ru.is
Hrund Skarphéðinsdóttir, verkfræðingur